extension ExtPose

Smellbeitusía fyrir Smartland og DV

CRX id

ifkmhmnljfodjffodpchgenciodmjfgh-

Description from extension meta

Gefur þér valkost á því að hætta við að opna hlekki sem leiða til Smartlands eða DV.

Image from store Smellbeitusía fyrir Smartland og DV
Description from store Hefur þú séð eftir því að hafa smellt frá "frétt", t.d frá DV eða Smartlandinu? Þá er þetta hentug viðbót fyrir vafran þinn! Ekki vera týpan sem að smellir á linkinn og commentar: "Er þetta frétt?!?!" eða "Hverjum er ekki sama!". Því að í hvert sinn sem þú smellir á slíkar fréttir, njóta miðlarnir góðs af. Því meira sorp sem við skoðum, því meira sorp er framleitt ;) Viðbót þessi stöðvar keyrsluna áður en það er orðið of seint. Athugið að þegar valið er að halda áfram á hlekkinn mun viðvörun ekki birtast aftur þar til að vafrinn er endurræstur. Þetta á nú bara að vera létt áminning af og til. FAQ: Hvers vegna ertu að þessu? : Fékk nóg af þessu sjálfur, átti það til að smella á hlekki frá umræddum miðlum. Einnig mæli ég með t.d. á Facebook að smella punktana þrjá hjá innleggjum sem þú vilt sjá minna af. Af hverju þessir miðlar? : Þetta eru bara þær síður sem komu mest upp hjá mér í Facebook feedinu. Til eru viðbætur nú þegar sem hægt er að velja hvaða síður eru blokkaðar. Þetta einfalda viðbót er svona 50/50; 'statement'/praktík. Geturðu bætt við öðrum miðlum eða tekið annan út? : Ég er nú bara að vinna í þessu til gamans þegar ég nenni, ef notendafjöldi verður nægilega mikill skal ég eyða tíma í þetta og að jafnvel leyfa notendum að þróa viðbótina með mér. Endilega skildu eftir umsögn um hvað þér finnst megi gera betur :)

Latest reviews

  • (2020-11-10) Rögnvaldur Bjarnason: SELF FIVE!

Statistics

Installs
Category
Rating
0.0 (0 votes)
Last update / version
2021-04-22 / 1.2
Listing languages

Links